Samið við satan er eina sjálfstæða ritgerðin þar sem Freud tekur til umfjöllunar djöflatrú og samninga við þann Vonda. Engu að síður mun hann hafa haft talsverðan áhuga á því efni allt frá fyrstu starfsárum sínum. Má líklega rekja þann áhuga til námsvistar hans hjá J. M. Charcot, prófessors og yfirlæknis á Salpêtrièregeðsjúkrahúsinu í París 1885-1886.
Ritgerðin byggir á sögu málarans Cristoph Haitzmann frá Bæjaralandi sem uppi var á 17. öld. Hélt Haitzmann því fram að djöfullinn hefði haft samband við sig og reynt að freista sín. Hann hafi svo á endanum látið undan honum og gert við hann skriflegan samning. Greining Freuds á þessu óvenjulega máli er mjög áhugaverð og stórskemmtileg lesning. Sigurjón Björnsson þýddi ritgerðina og skrifaði inngang.